Gunnars hefur verið ein af staðreyndum lífsins hér á Íslandi í yfir 40 ár!
Allt frá stofnun fyrirtækisins árið 1960 hafa Gunnars vörurnar verið með eindæmum vinsælar og á borðum flestra Íslendinga á einn eða annan hátt. Gunnars Majones eru sígild hversdagsvara og Gunnars vörur þykja einstakt ljúfmeti á brauðtertur. Hver getur ímyndað sér samloku án Gunanrs Majones?
Ef spurt væri hvernig stæði á velgengni Gunnars væri svarið einfalt. Fyrsta flokks hráefni, auk fagmennsku á hæsta stigi geta ekki annað en skilað góðri vöru, enda er það eitt af kjörorðum fyrirtækisins að fyrsta flokks vara eigi alltaf erindi til neytenda.
Það má því með sanni segja að eftir 40 ár séu vörur fyrirtækisins orðnar heimilisvinir í eldhússkápum allra íslenskra heimila og að auki ein af staðreyndum lífsins í uppvexti flestra Íslendinga.
Gerðu það gott með Gunnars!
GUNNAR JÓNSSON
Gunnar Jónsson, forstjóri Gunnars majones sf., var fæddur í Reykjavík 3. september 1920.
Eftir skólagöngu í Reykjavík lauk Gunnar búfræðinámi frá Bændaskólanum á Hvanneyri. Vann hann síðan við ýmis störf í Reykjavík s.s. rekstur eggjabús og útgerð eigin leigubifreiða.
Hann fór síðan til Bandaríkjanna þar sem hann lauk prófi í viðskipta- og hagfræði frá háskólanum í Minneapolis. Hóf hann síðan störf í New York og vann m.a. hjá International Harvester, Sheffield Farms og G. Hagen & co. við rannsóknarstörf og fjármálaumsýslu. Árið 1959 sneri fjölskyldan aftur til Íslands og hóf Gunnar þá störf hjá Hamilton félaginu á Keflavíkurflugvelli.
Ári síðar stofnuðu þau hjón síðan eigið fyrirtæki, Gunnars majones sf. Helgaði Gunnar síðan fyrirtækinu alla sína krafta og vann við það af dugnaði og ósérhlífni til dauðadags