18.04.2011
Tilkynning frá Gunnars
Með hliðsjón af neytendavernd vill Gunnars koma á framfæri að á markaði eru afurðir sem innihalda hveiti en þess ekki getið í innihaldslýsingu. Sinnepssósa, Hamborgarasósa, Graflaxsósa, Kokteilsósa og Dijon hunangssóssa innihalda allar sinnep sem m.a. innheldur hveiti eða hveitiafurðir í mjög litlu magni. Vörurnar eru í dreifingu í verslunum um land allt og unnið er að því að koma viðeigandi merkingu á.
Hveiti og afurðir búnar til úr þeim eru á lista yfir ofnæmis – og óþolsvalda og því varasamar fyrir ákveðna neytendahópa. Vörurnar eru að öllu skaðlausar og heilnæmar neytendum sem hafa ekki ofnæmi eða óþol fyrir hveiti (glúten).
Neytendur sem eiga vöruna og hafa ofnæmi fyrir hveiti eða hveitiafurðum er bent á að neyta hennar ekki og skila við fyrsta tækifæri til okkar að Dalshrauni 7, Hafnarfirði. Einnig má hafa samband beint í síma 530-7700 eða í gegnum netfangið sala@gunnars.is
27.10.2008
Nýjar uppskriftir

Við voru mat setja inn nýjar og spennandi uppskriftir af Nauta grillpiparsteik með Gunnars piparsósu og Kjúklingasalati með nachos.
Skoða
meira ->
14.10.2008
Mjúk fita hækkar ekki kólesteról í blóði.

Grein eftir Hólmfríði Þorgeirsdóttur verkefnisstjóra næringar á Lýðheilsustöð.
Birt í Morgunblaðinu Laugardaginn 17.02.2007 "Öll ómettuð fita er mjúk eða fljótandi við stofuhita og hækkar ekki kólesteról í blóði. Dæmi um mjúka fitu eru fljótandi matarolíur, þykkfljótandi eða mjúkt smjörlíki, lýsi og óhert fiskifita auk fitu í fræjum og hnetum."
meira ->
11.12.2006
Gott hjá Gunnari íslenskt majones í tæp fimmtíu ár!

Fyrirtækið Gunnars Majones hf. hóf framleiðslu á majónesi á því herrans ári 1960.
meira ->
2.10.2006
Hvað eru fersk matvæli?

Orðið ferskt getur verið gagnlegt fyrir neytendur þar sem það auðveldar fólki að gera greinarmun á vörum sem seldar eru fljótt eftir uppskeru eða framleiðslu og öðrum vörum.
meira ->
14.9.2006
Ný heimasíða Gunnars væntanleg

Ný heimasíða Gunnars Majones væntanleg eftir nokkrar vikur. Nýja heimasíðan mun innhalda fleiri uppskriftir en áður hafa verið á síðunni, einnig verður nýr og uppfærður vörulisti settur inn á síðuna.
Nánari tilkynningar verða við opnun nýju heimasíðunnar.
Bestu kveðjur frá Gunnars Majones
meira ->
1.9.2006
Hvatt til þess að velja íslenskt

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, opnuðu í morgun landsátakið Veljum íslenskt – og allir vinna. Að átakinu standa Samtök iðnaðarins, Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög þess og Bændasamtök Íslands og aðildarfélög þeirra.
meira ->