|
|
Það er markmið Gunnars Majones hf. að vera leiðandi á sínu sviði og uppfylla ávallt væntingar viðskiptavina sinna. Til að tryggja það markmið er lögð áhersla á bestu mögulegu gæði hráefnis og afurða allt til neytenda. Fylgt er þeim lögum og reglugerðum sem við eiga hverju sinni.
Fyrirtækið nýtir bestu framleiðslutækni sem býðst á hverjum tíma. Stuðst er við þau gæðakerfi sem best tryggja að markmið fyrirtækisins í gæðamálum hverju sinni nái fram að ganga. Það er stefna Gunnars Majones hf. að allir starfsmenn fyrirtækisins fái þá þjálfun og menntun sem þeir þarfnast til að þeir geti sinnt starfi sínu af ánægju og nái að sýna hæfni í starfi þannig að væntingar viðskiptavina og starfsmanna fari ávallt saman.