Afar holl samloka
Aðferð.
Hræra eggið og steikja á pönnu með smávegis hvítlauk og olíu. Láta kólna. Sjóða aspasinn í 5 mínútur og skera síðan í tvennt, langsum. Saxa salatið og skera tómatana fínt.
Smyrja brauðið með sósunni. Þar á er salatið, tómatarnir, eggjahræran og aspasinn sett. Að lokum er laxinn settur ofan á samlokuna.
Innihald.
2 sneiðar hafrabrauð
½ tómatar
Lambhagasalat
2 ferskir grænir aspasstönglar
1 egg
Reyktur lax
Smávegis hvítlaukur
Gunnars piparrótasósa
Kokkur.Jesús Rodriguez Fernández
Ljósmynd.Marisa Navarro Arason