Burrito a la Gunnars
Forsíða
Fyrirtækið
Vörur
Heildsala
Uppskriftir
Fréttir

Burrito “a la Gunnars”

 

Aðferð:
Tortillan er smurð með 1msk af chilly jalapeno sósunni. Kínakálið er skorið mjög fínt og sett ofan á. Paprikan og kúrbíturinn eru skorin í strimla.
Kjúklingastrimlarnir steiktir á mjög heitri pönnu í smá olíu. Þegar þeir eru brúnaðir er paprikunni og kúrbítnum bætt við. Kryddað með smá salti, kúmeni og kóríander.
Steikt þar til allt er eldað. Tekið af pönnunni og sett á tortilluna. Rúllað upp (hægt að sjá aðferð á pakkningu) og steikt báðum megin á heitri pönnu þar til brúnað.

Innihald:
1 stór wrap tortilla
50g kjúklingastrimlar
½ lítil paprika
¼ lítill kúrbítur
¼ tsk kúmenduft
¼ tsk kóríanderduft
1 blað kínakál
Olía
Smá salt
Gunnars chilly-jalapeno sósa

Kokkur.
Jesús Rodriguez Fernández

Ljósmynd.
Marisa Navarro Arason


Gunnars Majones hf. 220 Hafnafirði. Sími 530 7700. Fax 530 7709. Póstfang, sala@gunnars.is