Gamaldags og gott kartöflusalat
Forsíða
Fyrirtækið
Vörur
Heildsala
Uppskriftir
Fréttir

Gamaldags og gott kartöflusalat

 

 

Gamaldags og gott kartöflusalat

Uppskriftin miðast við fjóra fullorðna

Aðferð:
Sjóðið kartöflur í potti. Kæla þær svo undir köldu vatni og flysjið. Skerið þær síðan í stóra teninga, athugið að ofsjóða ekki kartöflurnar því þá getur verið erfitt að skera þær niður.
Teningarnir eru síðan djúpsteiktir í mjög heitri olíu þangað til þeir byrja að verða gullin-brúnir. Þeir eru síðan lagðir ofan á eldhúsrúllu til að þerra mestu olíuna af.

Rauðlaukurinn er skorinn gróft niður, graslaukurinn saxaður og öllu bætt saman við kartöflurnar. Því næst er kryddað með salti, pipar og þriðja kryddinu. Að lokum er öllu hrært varlega saman við Gunnars remolaðið og skreytt með heilum graslauk.
Salatið er bæði gott að borða volgt eða kalt.

Innihald (handa 4):
1kg af bökunarkartöflum
1 stór rauðlaukur
1 búnt graslaukur
Salt
Þriðja kryddið eftir smekk
Svartur pipar
Sólblóma olía
1 lítil dós af Gunnars remolaði

Kokkur.
Jesús Rodíguez Fernández
Grunnuppskrift frá móður Helenar.

Ljósmynd.
Marisa Navarro Arason

 

Innihald:
Jurtaolía, , grænmeti, eggjarauður, krydd, edik E260, sykur, salt, rotvarnarefni E211, E202.

Næring í 100 gr /103 ml:
Orka kkal 645/kj 2703, prótein 4 g, kolvetni 3 gr fita 68 gr, natríum 390 mg.



Gunnars Majones hf. 220 Hafnafirði. Sími 530 7700. Fax 530 7709. Póstfang, sala@gunnars.is