Grænmetis gómsæti
Forsíða
Fyrirtækið
Vörur
Heildsala
Uppskriftir
Fréttir

Grænmetis gómsæti

 

Aðferð:
Afhýða sellerýið (taka burt efsta lagið með trefjunum) og skera í litla teninga.
Blanda saman við sósuna og setja hana yfir brauðsneiðina. Skera salatið í fínar sneiðar og setja yfir sósuna. Skera ætiþistlana í tvennt og setja yfir salatið. Krydda með smá svörtum pipar.
Að síðustu er parmesan osturinn skorinn í mjög þunnar sneiðar með ostaskerara og nokkrar settar yfir ætiþistlana.

Innihald:
1 væn sneið af dökku brauði (helst með þykkri skorpu)
1 miðlungs sellerý stilkur
Hnefafylli af lollo rosso salati
5-6 niðursoðnir ætiþistlar
Ferskur parmesan
Svartur pipar
3 msk af Gunnars graflaxsósu

Kokkur.
Jesús Rodriguez Fernández

Ljósmynd.
Marisa Navarro Arason


Gunnars Majones hf. 220 Hafnafirði. Sími 530 7700. Fax 530 7709. Póstfang, sala@gunnars.is