Humar og grænmetis tempura
Forsíða
Fyrirtækið
Vörur
Heildsala
Uppskriftir
Fréttir

Humar og grænmetis tempura með Gunnars sinnpesósu.



Fyrir 4 sem forréttur.

Aðferð:
Hitið olíu í þykkbotna potti þar til hitamælir sýnir 180-190°C. Skelflettið og hreinsið humarinn. Skerið grænmetið niður í 1 cm þykka, jafna bita. Blandið saman vatni, eggjahvítu og kryddi og þykkið með maizena mjöli þar til deigið er orðið sæmilega þykkt. Hlutfallið er nálægt því að vera einn á móti einum. Dýfið grænmetinu í tempuradeigið og látið leka aðeins af því áður en það er sett út í heita olíuna og steikt þar til gullið eða í um 3 mínútur. Farið eins að með humarinn en gefið honum ögn lengri tíma.
Borið fram með Gunnars sinnepssósu.

Innihald:
400-500 gr humar í skel
1 stk gulrót
1 stk kúrbítur
1 stk Púrrulaukur, hvíti hlutinn eingöngu.
Maizenamjöl til þykkingar
100 ml ískalt vatn
1 eggjahvíta
Smakkað til með salti, pipar og örlitlu karrý.
Gunnars sinnepsósa
Kornolía til steikingar.

Kokkur.
Sergio Rodriguez og Carmen Caro

Ljósmynd.
Marisa Navarro Arason


Gunnars Majones hf. 220 Hafnafirði. Sími 530 7700. Fax 530 7709. Póstfang, sala@gunnars.is