Kjúklinga chiabatta með gráðaosti
Uppskiftin miðast við eina samloku
Aðferð:
Chiabatta brauðið er skorið til helminga. Tómaturinn er hakkaður í matvinnsluvél eða með töfrasprota, ásamt hvítlauknum og ólívuolíunni.
Þessu er smurt á brauðið og yfir er söxuðu lambhagasalatinu dreift yfir.
Setjið síðan gott lag af Gunnars gráðostasósunni yfir salatið. Kjúklingalundin er skorin í 3-4 sneiðar. Beikonið er steikt á pönnu þangað til stökkt. Á þessari sömu pönnu er síðan kjúklingalundin steikt þangað til fullelduð (má bæta við smá olíu ef þörf er á).
Krydduð með salti og pipar.
Beikonið og kjúklingurinn er síðan sett á brauðið. Að lokum er svo efri helmingur brauðsins smurður með Gunnars gráðaostasósu og sett yfir. Þennan einfalda rétt má líka elda á grillinu, en þá er betra að skera kjúklingalundina niður eftir á og steikja hana í heilu lagi.
Innihald (á mann)
½ kjúklingalund
3-4 sneiðar af beikoni
1 tómatur
1 hvítlauksrif
1 msk ólívuolía
1 stórt chiabatta brauð
Smá lambhagasalat
Salt
Pipar
Sólblómaolía
Gunnars gráðaostasósa
Kokkur.
Jesús Rodríguez Fernández
Ljósmynd.
Marisa Navarro Arason
|
Innihald: |