Kjúklingasalat með nachos
Fyrir eins marga og þér dettur í hug.
Aðferð:
Blanda saman raspi, papriku, laukdufti, cayenne piparnum, hvítlauk og steinselju. Hrærið eggin og setjið síðan á disk. Setja nú hveiti á annan disk. Skerið kjúklingabringurnar í strimla, saltið þær eftir smekk og veltið þeim upp úr hveitinu. Því næst er bringunum dýft í eggjablönduna og þar á eftir er þeim velt upp úr raspinum þannig að þær séu vel þaktar.
Bringurnar eru síðan steiktar í vel heitri olíu þangað til þær eru orðnar gullinbrúnar og steiktar í gegn. Setjið eldhúspappír á disk, þar ofan á eru bringurnar lagðar að steikingu lokinni (pappírinn dregur í sig fituna).
Salatblandan er sett á disk, ásamt niðurskornum tómötunum og lauknum. Þar ofan á er balsamic sýrópinu og Gunnars RANCH sósunni dreift. Nachos flögunum er dreift í kringum salatið og steikti kjúklingurinn settur ofan á.
Til hliðar er gott að hafa skál með auka sósu sem dýfi fyrirkjúkling og nachos.
Kokkur.
Jesús Rodríguez Fernández
Ljósmynd.
Marisa Navarro Arason
Ranch sósa
![]() |
Ranch sosa 200ml |
Neytendapakkningar
![]() |
|||
|
Ranch sósa |
|