Kjúklingaspjót
Forsíða
Fyrirtækið
Vörur
Heildsala
Uppskriftir
Fréttir

Hvítlaukslegin kjúklingaspjót með Gunnars Chili Jalapeno dýfu.




Hvítlaukslegin kjúklingaspjót með Gunnars Chili Jalapeno dýfu fyrir 4.
Þessi réttur er hugsaður sem snarl með fordrykk eða sem forréttur. Hann hentar líka vel í veislur.

Aðferð.
Þræðið kjúklingalærin upp á grillspjótin, kryddið þau með salti og pipar og leggið á fat. Blandið saman hvítlauk, olíu, teriyakisósu og sojasósu og hellið yfir grillspjótin.
Látið standa í 1-2 klukkustundir og grillið síðan spjótin í 4-5 mínútur á hvorri hlið. Berið fram með Chili Jalapeno-sósunni

Innihald.
4 grillspjót (sem hafa legið í bleyti)
400 g úrbeinuð kjúklingalæri eða
kjúklingalundir
salt og nýmalaður pipar
3 hvítlauksrif, pressuð
1 dl jómfrúarolía
4 msk. teriyaki-sósa
2 msk. sojasósa
Chili Jalapeno sósa frá Gunnars


Gunnars Majones hf. 220 Hafnafirði. Sími 530 7700. Fax 530 7709. Póstfang, sala@gunnars.is