Laxaturn með tómötum og mozarella
Forsíða
Fyrirtækið
Vörur
Heildsala
Uppskriftir
Fréttir

Laxaturn með tómötum, mozarella og Gunnars sítrónu majonesi


 


Fyrir 4 sem forréttur.

Aðferð:
Til að fá fram fallegt lag á þennan rétt þarf að hafa hringlaga útstungumót til að skera út sneiðar af laxi og salati. Best er að stærð mótsins sé svipuð og þvermál tómatanna sem notaðir eru. Skerið laxinn og salatið í fallegar hringlaga sneiðar með mótinu. Skerið tómatanna og mozarella ostinn í jafnar sneiðar.

Látið útstungumótið á miðjuna á þeim disk er nota skal og raðið í það salati, Gunnars sítrónu majonesi, tómasneið, salati , mozarella og reyktum laxi á víxl þar til mótið er fullt. Fjarlægið mótið varlega af disknum og haldið áfram með hina turnana á sama hátt.

Innihald:
4 stk tómatar
2 stk Mozarella ostur
1 stk lambhaga salat
200 gr reyktur lax í þunnum sneiðum
Gunnars sítrónu majones

Kokkur.
Sergio Rodriguez og Carmen Caro

Ljósmynd.
Marisa Navarro Arason


 


Gunnars Majones hf. 220 Hafnafirði. Sími 530 7700. Fax 530 7709. Póstfang, sala@gunnars.is