Nauta grillpiparsteik
Forsíða
Fyrirtækið
Vörur
Heildsala
Uppskriftir
Fréttir

Nauta grillpiparsteik



Fyrir eins marga og þér viljið, uppskriftin miðast við einn og margfaldast með fjölda gesta.

Aðferð:
Hvítlaukurinn er saxaður smátt og blandað saman við ólífuolíuna. Papríkan er skorin í 4 parta og hreinsuð.

Kúrbíturinn er skorinn í ca. 1 cm. þykkar sneiðar. Púrrulaukinn er best að setja í heilu lagi á grillið, ef hann er mjög langur má skera hann í minni bita. Kjötið og grænmetið er síðan penslað með olíunni og kryddað með salti og pipar.

Setjið fyrst púrrulaukinn og paprikuna á grillið þar sem það tekur aðeins lngri tíma að grilla grænmeti.
Því næst kúrbíturinn settur á grillið. Það er í góðu lagi að ysta lag púrrulauksins brenni, sem og paprikuhýðið.
Mikilvægast er að steikja þetta þangað til allt er orðið mjúkt í gegn. Síðan er brennda lagið tekið af grænmetinu og á það þá að vera sætt og safaríkt undir.
Kjötið er síðan grillað á háum hita, báðum megin þannig að það loki sér. Síðan er það sett á lægri hita í grillinu þannig að það fullsteikist eftir smekk. Þegar kjötið er tilbúið er það sett á disk ásamt grilluðu grænmetinu og Gunnars piparsósu dreift yfir.

Að lokum er smávegis söxuðu timian dreift yfir og nokkrir heilir stilkar notaðir til skrauts.

Innihald (á mann):
150-200 gr nautapiparsteik
½ Kúrbítur
½ Púrrulaukur
1 Paprika
Smá ferskt timian (blóðberg)
2 söxuð hvítlauksrif
½ bolli ólívuolía
Salt
Pipar
Gunnars piparsósa

Kokkur.
Jesús Rodriguez Fernández

Ljósmynd.
Marisa Navarro Arason  

Innihald:
Jurtaolía, sýrður rjómi, vatn, eggjarauður, krydd, edik E260, sykur, salt, bindiefni, E415, E412, rotvarnarefni E211, E202.

Næring í 100 gr /103 ml:
Orka kkal 645/kj 2659, prótein 1,2 g, kolvetni 5,3 gr fita 69 gr, natríum 290 mg.



Gunnars Majones hf. 220 Hafnafirði. Sími 530 7700. Fax 530 7709. Póstfang, sala@gunnars.is