Pantas bravas - kartöfluréttur
Aðferð: Sjóða kartöflurnar, en passa að mauksjóða þær ekki. Kæla þær svo undir köldu vatni og flysja. Skera þær í stóra teninga og djúpsteikja þá í mjög heitri olíu (eða djúpsteikingarpotti).
Þvínæst eru teningarnir lagðir ofan á eldhúsrúllu til að þerra olíuna. Kryddað með salti og mjög fínsöxuðum hvítlauk. Að síðustu eru teningarnir settir saman við sósuna og skreytt með steinselju. Má borða kalt.
Innihald:(Meðlæti fyrir 4)
1kg af kartöflum
2 hvítlauksrif
Steinselja
Salt
Olía
1 lítil dós af Gunnars Brava sósu
Kokkur.
Jesús Rodriguez Fernández
Ljósmynd.Marisa Navarro Arason