Saltfiskur með alioli
Uppskriftin miðast við fjóra
Aðferð:
Kartöflurnar eru skornar í sneiðar (ekki meira en ½ cm á þykkt), laukurinn skorinn í mjög þunnar sneiðar og allt sett í lítið eldfast mót.
Þar yfir er ólivuolíunni dreift og kryddað með salti og pipar. Þessu er öllu blandað vel saman þar til kartöflurnar eru þaktar í oíu.
Þessu er síðan dreift jafnt í mótið og er miðað við að þetta sé um 3cm á þykkt. Yfir mótið er síðan settur álpappír og þessu stungið inn í 180 gráðu heitan ofn í c.a 45 mínútur. Á meðan þetta er að ofnbakast er saltfiskurinn er skorinn í meðalstóra bita.
Best er að hafa 4 stóra bita. Honum er síðan velt upp úr hveitinu og steiktur í sólblómaolíunni, báðum megin þangað til gullinbrúnn (c.a. 2 mín á hvorri hlið). Grænmetið er sett í pott og snöggsoðið. Þegar ofnbökuðu kartöflurnar eru mjúkar í gegn er álpappírinn tekinn af og saltfiskbitunum raðað ofan á.
Þar yfir er parmesanosturinn rifinn og mótinu stungið aftur inn í ofn í c.a 5 mín. Þessu er síðan stillt upp á disk með grænmetið til hliðar og smávegis saxaðri steinselju dreift yfir. Að síðustu er Gunnars alioli dreift yfir fiskinn.
Innihald (handa 4):
800 gr útvatnaður saltfiskur
400 gr babygulrætur
400 gr ferskt brokkólí
1 búnt steinselja
4 bökunarkartöflur
1 meðalstór laukur
Ferskur parmesanostur
Hveiti
Pipar
Salt
Ólívuolía
Sólblómaolía
Gunnars alioli
Kokkur.
Jesús Rodíguez Fernández
Ljósmynd.
Marisa Navarro Arason
Allioli sósa
![]() |
Innihald: |
![]() |
|||
|
250ml |
|