Steikarsamloka með Gunnars Dijon Hunangssósu
Steikarsamloka með Gunnars Dijon Hunangssósu fyrir 2. Þessa samloku er tilvalið að útbúa úr kjötafgöngum af grillinu, helst lambakjöti eða nautakjöti. Og það er eins og Dijon Hunangssósan sé sérhönnuð fyrir þessa samloku.
Aðferð.
Skerið paprikuna í helminga og fræhreinsið. Penslið hana með jómfrúarolíu og grillið hana við mikinn hita þar til hún er orðin svört að utan. Leyfið henni að kólna örlítið, afhýðið hana og skerið í fjórðunga. Skerið
laukinn í fjórðunga og síðan hvern fjórðung í örþunnar sneiðar. Brúnið laukinn á pönnu á eldavélarhellu í afganginum af olíunni í nokkrar mínútur.
Setjið balsamedik, sojasósu og hunang á pönnuna, kryddið með salti og pipar og látið krauma þar til mesti
vökvinn hefur gufað upp. Skerið brauðin í helminga eftir endilöngu og ristið á grillinu í örstutta stund.
Raðið hráefninu á neðri brauðhelmingana í þessari röð: klettasalat, nautakjöt, laukur og paprika. Smyrjið Dijon Hunangssósunni á efri brauðhelmingana, tyllið þeim ofan á og berið fram.
Innihald. 1 rauð paprika
4 msk. jómfrúarolía
1 laukur
1 msk. balsamedik
1 msk. sojasósa
2 tsk. hunang
salt og nýmalaður pipar
2 lítil baguette-brauð
1 pk. klettasalatsblanda
200 g grillað kjöt, skorið í þunnar sneiðar
1 dós Dijon Hunangssósa frá Gunnars