Teriyaki-lax
Forsíða
Fyrirtækið
Vörur
Heildsala
Uppskriftir
Fréttir

Teriyaki-lax með Gunnars Piparrótarsósu.




 Teriyaki-lax með Gunnars Piparrótarsósu fyrir 4.

Aðferð.
Blandið saman hvítlauk, chili-aldini, engifer, teriyaki-sósu og olíu og hellið yfir laxinn.
Látið standa í 1 klst. Hitið grillið. Setjið laxinn í fiskiklemmu og grillið hann við góðan hita, fyrst á roðhliðinni í 4-5 mínútur og síðan á hinni hliðinni í 2 mínútur. Breiðið álpappír yfir fiskinn og látið hann standa í 3 mínútur. Berið hann síðan fram með góðu salati, hrísgrjónum og Gunnars Piparrótarsósu.

Innihald.

800 g laxaflök með roði
2 hvítlauksrif, pressuð
1 rautt chili-aldin, smátt saxað
1 cm bútur af engifer, smátt saxaður
1 dl teriyaki-sósa
1 dl góð olía (t.d. jarðhnetu- eða
vínberjakjarnaolía)
1 dós Piparrótarsósa frá Gunnars


Gunnars Majones hf. 220 Hafnafirði. Sími 530 7700. Fax 530 7709. Póstfang, sala@gunnars.is