Veislubrauðterta
Forsíða
Fyrirtækið
Vörur
Heildsala
Uppskriftir
Fréttir
 

Veislubrauðterta



Veislubrauðterta, uppskrift
20-24 sneiðar

Aðferð:
Skerið skorpuna utan af öllu brauðinu. Mýkið lifrarkæfu með rjóma eða mjólk. Mýkið rjómaost og blandið sýrðum rjóma út í. Setjið tvær lengjur af fínu brauði á disk og smyrjið með lifrarkæfu.

Setjið lag af grófu brauði ofan á og smyrjið með rjómaostablöndu, setjið svolítið af salati með. Setjið til skiptis báðar brauðtegundirnar, lifrarkæfu og rjómaostblöndu þar til ykkur finnst tertan nógu há.

Smyrjið tertuna að utan með Gunnars majónesi, setjið salat á hliðarnar og skreytið eftir smekk.

Innihald
20-24 sneiðar
2 brauðtertubrauð
1 gróft brauð
400 g góð lifrarkæfa
2 msk. rjómi eða mjólk
200 g rjómaostur, hreinn eða m/ kryddjurtum
1 1/2 box sýrður rjómi (300 g)
1 salathöfuð, sneitt fínt

Dæmi um skreytingu:
400 g Gunnars majónes
1 krukka ólífur
150 g óðalsostur, sneiddur og rúllað utan um 1/2 ólífu
200 g reyktur lax, sneiddur í þunnar sneiðar
200 g rækjur
1/2 dós rauður kavíar nokkrir dill- eða kóríanderkvistir nokkrar radísur
nokkur kumquat eða rifnar gulrætur

Uppskrift úr Gestgjafanum.
Umsjón: Sigríður Björk Bragadóttir og Úlfar Finnbjörnsson Myndir: Gunnar Þór Nilsen

Brauðtertur sem PDF






Gunnars Majones hf. 220 Hafnafirði. Sími 530 7700. Fax 530 7709. Póstfang, sala@gunnars.is